Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytisins

Föstudaginn 1. júlí 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 25. mars 2010, til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum, kærði  […], hdl., fyrir hönd Einhamars Seafood ehf., kt. 581202-3340, og  […], sem er taílenskur ríkisborgari, fd.  […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2010, sbr. einnig ákvörðun stofnunarinnar, dags. 2. mars 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá Einhamri Seafood ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis, til handa  […], sem er taílenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Einhamri Seafood ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Í erindi kæranda kemur meðal annars fram að umræddum útlendingi hafi áður verið veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli 12. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Jafnframt kemur fram að umræddur útlendingur hafi á grundvelli þess atvinnuleyfis starfað hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í tæpt eitt og hálft ár og því sé að mati kæranda ekki um að ræða umsókn um nýtt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi heldur snúi umsóknin að endurnýjun á atvinnuleyfi sem umræddum útlendingi hafi áður verið veitt. Að mati kæranda sé Vinnumálastofnun með synjun sinni því ekki að skapa rými fyrir ráðningu ríkisborgara innan Evrópska efnahagssvæðisins í laust starf hér á landi heldur sé verið að svipta einstakling atvinnu sinni sem hafi haft örugga vinnu og um leið sé verið að raska öllum hans högum þar sem hann verði að hverfa frá unnustu sinni og börnum hennar. Þá sé verið að auka á vanda hlutaðeigandi atvinnurekanda við að manna laus störf hjá fyrirtækinu en síðastliðin sjö ár hafi reynst mjög erfitt að fá hæft starfsfólk til starfa. Fram kemur að fyrirtækið hafi í janúar 2010 auglýst til umsóknar sex laus störf hjá fyrirtækinu en í kjölfar þeirrar auglýsingar hafi ekki reynst unnt að ráða hæft starfsfólk til þeirra starfa þrátt fyrir slæmt ástand í atvinnumálum í landinu þar sem takmarkaður áhugi sé á störfum við fiskvinnslu að mati kæranda. Þá kemur fram að umræddur útlendingur sé orðinn einn af lykilstarfsmönnum fyrirtækisins en með störfum sínum hjá fyrirtækinu hafi hann hlotið sérþekkingu á mörgu í starfseminni sem fáir aðrir starfsmenn geti sinnt, svo sem réttri flokkun og mati á hráefni, flökun fisks sem og greiningu á viðhaldsþörf og viðgerðum tækja.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 3. maí 2010. Með bréfi, dags. 4. júní 2010, ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar um umsögn stofnunarinnar vegna umræddrar stjórnsýslukæru og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar sama dag, dags. 2. júní 2010.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að stofnunin telji að líta verði til þess að mjög slæmar horfur séu á innlendum vinnumarkaði í náinni framtíð. Þá ítrekar Vinnumálastofnun í umsögn sinni afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 25. janúar 2010, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins tímabundin atvinnuleyfi hér á landi til að gegna störfum hér á landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að íslenskur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi og njóti þeir forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að undanskildum ríkisborgurum Búlgaríu og Rúmeníu.

Áður en Vinnumálastofnun geti veitt tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að vinnuafli, meðal annars með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, nema slík leit hafi verið fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu. Jafnframt tekur stofnunin fram að samkvæmt upplýsingum frá Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf en vinnumiðlunin telji að auðvelt sé að finna starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna starfinu. Því telji stofnunin ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Jafnframt bendir stofnunin á að íslensk stjórnvöld hafi áréttað þær skuldbindingar sem felast í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um forgang ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins umfram ríkisborgara ríkja utan svæðisins til starfa hér á landi. Stofnunin vísar í þessu sambandi til úrskurða félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem kveðnir hafi verið upp frá því í september 2005 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Þá kemur fram í umsögn Vinnumálastofnunar að stofnunin hafi aldrei veitt umræddum útlendingi tímabundið atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli 12. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, þar sem hann hafi dvalið hér á landi sem maki íslensks ríkisborgara og því hafi hann verið undanþegin kröfu um atvinnuleyfi til að geta starfað hér á landi. Umrædd umsókn um atvinnuleyfi snúi því að mati stofnunarinnar að nýju tímabundnu atvinnuleyfi hér á landi vegna skorts á vinnuafli á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telur Vinnumálastofnun því ekki heimilt að veita tímabundin atvinnuleyfi til útlendinga sem eru ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telur stofnunin slíkar ástæður ekki vera fyrir hendi í máli þessu.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun að stofnuninni hafi borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 23. júlí 2010, var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 9. ágúst 2010. Að ósk kæranda var sá frestur framlengdur til 19. ágúst 2010. Í fyrrnefndu bréfi, dags. 23. júlí 2010, óskað ráðuneytið jafnframt eftir nánari upplýsingum varðandi atvinnuauglýsingu hlutaðeigandi atvinnurekanda í janúar 2010 sem vísað var til í erindi kæranda til ráðuneytisins. Meðal annars var óskað eftir afriti af umræddri auglýsingu sem og upplýsingum um fjölda umsækjenda og hvort leitað hafi verið atbeina Vinnumálastofnunar um að manna þær stöður sem auglýstar hafi verið.

Í svarbréfi kæranda, dags. 18. ágúst 2010, ítrekar kærandi áður framkomin sjónarmið sín í málinu, meðal annars hvað varðar mikilvægi þess fyrir starfsemi hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddum útlendingi verði veitt atvinnuleyfi til að gegna því starfi sem hér um ræðir. Í því sambandi vísar kærandi meðal annars til bréfs starfsmannastjóra fyrirtækisins sem fylgir með fyrrnefndu svarbréfi kæranda til ráðuneytisins.

Enn fremur kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki leitað atbeina Vinnumálstofnunar sérstaklega í tengslum við auglýsingu þá sem vitnað hafi verið til í erindi kæranda til ráðuneytisins, dags. 25. mars 2010. Hins vegar hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi að minnsta kosti í tvígang haft símasamband við skrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ í því skyni að óska atbeina og aðstoðar við mannaráðningar án þess að það hafi borið árangur í formi ráðninga nýrra starfsmanna hjá fyrirtækinu. 

Jafnframt kemur fram að kærandi hafi ekki haldið sérstaklega utan um fjölda umsækjanda um laus störf hjá fyrirtækinu með skrá eða gögnum og því liggi ekki fyrir hjá kæranda skrifleg gögn hvað það varðar. Hins vegar telji kærandi unnt að fullyrða að þegar umrædd atvinnuauglýsing hafi verið birt hafi á milli tuttugu og þrjátíu atvinnuleitendur frá Portúgal, Litháen og Póllandi haft samband við fyrirtækið í því skyni að kynna sér frekar þau störf sem auglýst hafi verið en ekki hafi komið til ráðninga úr þeim hópi.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, var heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 162/2010, um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar ráðuneyta, sbr. einnig lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli sem sótt hafði verið um á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

Í athugasemdum við 7. gr. a frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hefur gert til að ráða fólk sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði og að atvinnurekendur leiti eftir starfsfólki innan svæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða II. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans að starfsfólki innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki, þar á meðal með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans að starfsfólki innanlands hefði ekki skilað árangri. Þegar litið er til eðlis starfsins sem hér um ræðir verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Á það ekki síst við í ljósi þess að í desember 2009 voru að meðaltali 13.776 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. skýrslu stofnunarinnar yfir atvinnuástand nr. 12/2009 en það jafngildir því að skráð atvinnuleysi hafi verið 8,2% á þeim tíma. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum 13,6% sem svarar til 1.522 einstaklinga að meðaltali.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki óskað eftir aðstoð stofnunarinnar, með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni innan Evrópska efnahagssvæðisins til að gegna umræddu starfi. Þá kemur fram í gögnum málsins að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi auglýst eftir starfsfólki í dagblöðum en hins vegar hafi ekki verið unnt að ráða hæft starfsfólk til starfa í kjölfar þeirrar auglýsingar að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda. Það er mat ráðuneytisins að í máli þessu gildi hið lögbundna skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að reyna til hlítar að ráða starfsmann í umrætt starf sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði með því að óska eftir aðstoð Vinnumálastofnunar, þar á meðal með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en unnt hafi verið að veita umræddum útlendingi tímabundið atvinnuleyfi þar sem sú leit hafi ekki borið árangur. Það er jafnframt mat ráðuneytisins að ótilgreindar atvinnuauglýsingar í dagblöðum eða annars staðar geti ekki leyst hlutaðeigandi atvinnurekanda undan hinu lögbundna skilyrði. Þá er það mat ráðuneytisins að atvinnuauglýsingar í dagblöðum verði ekki lagðar að jöfnu við leit atvinnurekanda að starfsfólki af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu.

Við framkvæmd laganna um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli á innlendum vinnumarkaði sé viðhaldið. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Í því sambandi má nefna að skráð atvinnuleysi fór úr 1,3% í september 2008 í 6,6% í janúar 2009 og hélt skráð atvinnuleysi áfram að aukast hér á landi þar til í apríl 2009 er það mældist 9,1%. Nokkrar sveiflur hafa verið í skráðu atvinnuleysi frá haustmánuðum 2008 en það hefur þó ekki mælst lægra en 7% síðan í febrúar 2009. Í maí 2011 var skráð atvinnuleysi 7,4% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 12.553 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar yfir atvinnuástand nr. 5/2011. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum 12,1% sem svarar til 1.371 einstaklinga að meðaltali.

Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, geta aðrar sérstakar ástæður mælt með leyfisveitingu. Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laganna, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að gert sé ráð fyrir að „Vinnumálastofnun verði áfram heimilt að líta til sérstakra ástæðna fyrir ráðningu útlendings við veitingu atvinnuleyfa en þá er við það miðað að þýðingarmikið sé fyrir rekstur atvinnurekanda að fá hlutaðeigandi útlending til starfa tímabundið. Með þessu er ekki átt við ástæður sem lúta að útlendingnum sjálfum eða aðstæðum hans.“ Ráðuneytið skortir því heimild að lögum til að fjalla efnislega um þau atriði er lúta að persónulegum aðstæðum umrædds útlendings sem fjallað er um í gögnum málsins sem og til að taka afstöðu til þeirra aðstæðna í niðurstöðu sinni í máli þessu.

Fram kemur í gögnum málsins að umræddur útlendingur sé orðinn einn af lykilstarfsmönnum fyrirtækisins og því að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda mikilvægt fyrir fyrirtækið að honum verði veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi. Ráðuneytið dregur ekki í efa að umræddur útlendingur hafi sinnt starfi sínu af kostgæfni þann tíma sem hann hefur starfað hjá fyrirtækinu og því kunni það að vera til hægðarauka fyrir hlutaðeigandi atvinnurekanda að hafa hann áfram í starfi hjá fyrirtækinu. Hins vegar er það mat ráðuneytisins að það verði ekki talið þýðingarmikið fyrir rekstur hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddum útlendingi verði veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi til að gegna því starfi sem hér um ræðir enda megi ætla að til að gegna slíkum störfum séu alla jafna ráðnir ófaglærðir atvinnuleitendur þar sem störf flakara krefjast almennt ekki tiltekinnar sérfræðikunnáttu. Er í því sambandi einnig litið til tiltölulega skamms starfstíma umrædds útlendings hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda. Verður því ekki talið að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þessu sem mæli með veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Þegar litið er til núverandi aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, þess að ekki verður séð að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar, með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni innan Evrópska efnahagssvæðisins til að gegna umræddu starfi, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði eða af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2010, sbr. ákvörðun stofnunarinnar, dags. 2. mars 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er taílenskur ríkisborgari, fd.  […], í því skyni að ráða sig til starfa hjá Einhamri Seafood ehf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum